Return to BahaiPrayers.net
Facebook
Ó Þú góði Drottinn! Við erum þjónar fótskarar Þinnar, sem leitum hælis við Þínar heilögu dyr. Við leitum einskis athvarfs nema þessarar sterku stoðar, biðjum um engan griðastað nema varðveislu Þína. Vernda okkur og blessa, styð okkur, gef að við elskum aðeins velþóknun Þína, mælum aðeins lof um Þig, fylgjum aðeins vegi sannleikans, að við megum verða nógu rík til að komast af án alls nema Þín og Þiggja gjafir okkar úr úthafi gæsku Þinnar, leitumst ætíð við að upphefja málstað Þinn og dreifa ljúfum ilmi Þínum víða vegu, gleymum sjálfum okkur og festum hugann eingöngu við Þig, afneitum öllu öðru og séum gagntekin af Þér.
Ó Þú framfærandi, ó Þú fyrirgefandi! Gef okkur náð Þína og ástúð, gjafir Þínar og veitingar og sjá fyrir okkur svo við megum ná markmiði okkar. Þú ert hinn voldugi, hinn máttugi, þekkjandinn, sjáandinn og sannlega ert Þú hinn örláti og sannlega ert Þú hinn almiskunnsami og sannlega ert Þú sá sem ætíð fyrirgefur, sá sem iðrun skal færa, sá sem fyrirgefur jafnvel hörmulegustu syndir.
- `Abdu'l-Bahá