Return to BahaiPrayers.net
Facebook
Ó Drottinn minn! Ó Drottinn minn! Þetta er lampi sem lýsir af eldi ástar Þinnar og skín af loganum sem er glæddur í tré náðar Þinnar. Ó Drottinn minn! Glæð funa hans, hita og eld með bálinu sem brennur á Sinaí opinberunar Þinnar. Sannlega ert Þú sá sem staðfestir, hjálparinn, hinn voldugi og örláti, hinn ástríki.
- `Abdu'l-Bahá