Return to BahaiPrayers.net
Facebook
Ó Þú framfærandi! Þú hefur andað ljúfum ilmi heilags anda yfir vinina á Vesturlöndum og lýst upp vesturhimininn með ljósi leiðsagnar. Þú hefur laðað þá til Þín sem eitt sinn voru fjarlægir, Þú hefur gert hina ókunnu að ástríkum vinum, Þú hefur vakið þá sem sváfu, Þú hefur gert hina gálausu aðgætna.
Ó Þú framfærandi! Aðstoða þessa göfugu vini við að ávinna sér velþóknun Þína og ger þá að velunnurum jafnt vina sem ókunnugra. Leið þá inn í veröld sem varir að eilífu, veit þeim hlutdeild í himneskri náð, lát þá verða sanna Bahá’ía, einlæga í Guði, frelsa þá frá ytri eftirlíkingum og grundvalla þá staðfastlega í sannleikanum. Ger þá að táknum og ummerkjum ríkisins, skínandi stjörnur yfir sjónarhring þessa lægra lífs. Ger þá að huggun og hugsvölun mannkyns, þjóna heimsfriðarins. Ölva þá víni heilræða Þinna og gef að þeir megi allir feta stigu boða Þinna.
Ó Þú framfærandi! Heitasta ósk þessa þjóns fótskarar Þinnar er að sjá vinina í austri og vestri í nánu samneyti; að sjá alla menn koma saman í ást á einu miklu mannþingi líkt og staka vatnsdropa sameinaða í voldugu hafi, að sjá þá alla sem fugla í einum rósagarði, sem perlur eins hafs, lauf sama trés, geisla einnar sólar.
Þú ert hinn máttugi og voldugi og Þú ert Guð styrks, hinn almáttugi og alsjáandi.
- `Abdu'l-Bahá