Return to BahaiPrayers.net
Facebook
Í hvert sinn, sem þér gangið inn í ráðstefnuherbergið, hafið yfir þessa bæn með hjarta, sem slær af ást til Guðs, og tungu, sem er hrein af öllu nema minningu Hans, til þess að Hinn almáttugi megi náðarsamlega aðstoða yður við að vinna æðstan sigur:
Ó Guð, Guð minn! Við erum þjónar Þínir, sem höfum leitað í tilbeiðslu til heilagrar ásjónu Þinnar og höfum sagt skilið við allt nema Þig á þessum dýrlega degi. Við erum samankomin í þessu andlega ráði, sameinuð í hugsunum og skoðunum, með samstillt markmið að upphefja orð Þitt meðal mannkynsins. Ó Drottinn, Guð okkar! Ger okkur að táknum guðdómlegrar handleiðslu Þinnar, gunnfána upphafinnar trúar Þinnar meðal manna, þjóna Þíns máttuga sáttmála. Ó Þú, æðstur Drottinn okkar! Ger okkur að opinberun guðdómlegrar einingar Þinnar í ríki dýrðar Þinnar og blikandi stjörnur, sem skína víða vegu. Drottinn! Hjálpa okkur að verða höf, ólgandi af bylgjum Þinnar undursamlegu náðar, fljót sem streyma frá aldýrlegum hæðum Þínum, ágæta ávexti á tré Þíns himneska málstaðar, tré, sem bærast í andvara örlætis Þíns í himneskum víngarði Þínum. Ó Guð! Ger sálir okkar háðar ritningarversum guðlegrar einingar Þinnar, hjörtu okkar fagnandi með úthellingu náðar Þinnar, til þess að við getum sameinast líkt og öldur eins sjávar og runnið saman eins og geislar glampandi ljóss Þíns; að hugsanir okkar, skoðanir og tilfinningar megi verða sem einn veruleiki, sem birtir anda sameiningar um víða veröld.
Þú ert hinn miskunnsami og gjafmildi, veitandinn, hinn almáttugi og náðugi, hinn vorkunnláti.
- `Abdu'l-Bahá