Return to BahaiPrayers.net
Facebook
Lof sér Þér, ó Drottinn Guð minn! Gef náðarsamlega að þessi hvítvoðungur megi drekka af brjósti mildrar miskunnar Þinnar og ástríkrar forsjár og nærast af ávöxtunum sem vaxa á Þínum himnesku trjám. Fel hann ekki forsjá neins nema Þín, því Þú skapaðir hann sjálfur og gafst honum líf með mætti allsráðandi valds Þíns og vilja. Enginn er Guð nema Þú, hinn almáttugi og alvitri.
Lofaður sért Þú, ó ástvinur minn. Lát berast yfir hann ljúfan ilm Þinnar yfirskilvitlegu hylli og angan heilagra gjafa Þinna. Ger honum því kleift að leita skjóls í forsælu Þíns upphafnasta nafns, ó Þú sem hefur í hendi Þér ríki nafna og eiginda. Sannlega ert Þú þess megnugur að gera það sem Þér líst og Þú ert að sönnu hinn máttugi og upphafni, sá sem ætíð fyrirgefur, hinn náðugi og örláti, hinn miskunnsami.
- Bahá'u'lláh