Return to BahaiPrayers.net
Facebook
Ó Þér meyru sprotar í garði ástar Guðs! Ó, Þér fersku tré í jarðvegi þekkingar Guðs! Blómstrandi jurtir í vorgarði eru unaðsleg sjón. Hinar nýsprottnu plöntur gefa frá sér sterka angan, sérhvert blómstur gleður augað með sérstakri fegurð sinni og blöð þess og aldin taka skjótum þroska. Og þegar fólkið leggur leið sína inn í garðinn og virðir fyrir sér fegurð blómanna og andar að sér ilmi þeirra, verða sálir þeirra fagnandi og hjörtu þeirra fá svölun. Vaxið því hratt á þessu fágæta vori, ó Þér, sem eruð blóm á himneskum greinum og ávextir á tré samlyndisins, og með andlit yðar geislandi beint hjörtum yðar að aðsetri þess Drottins, sem allt heyrir og segið: Ó, Þú Drottinn undursamlegrar náðar! Veit okkur nýja blessun. Gef okkur ferskleik vorsins. Við erum frjóangar, sem fingur örlætis Þíns hafa gróðursett og höfum verið mótuð úr vatni og leir mildrar ástúðar Þinnar. Okkur þyrstir eftir lifandi vötnum hylli Þinnar og eigum allt undir úthellingu úr skýjum örlætis Þíns. Lát ekki þennan trjálund ræktarlausan, þar sem vonir okkar vaxa og neita honum ekki um regn ástríkis Þíns. Gef að úr skýjum miskunnar Þinnar megi falla gnægð regns til þess að meiður lífs okkar megi bera ávöxt og við fáum kærustu óskir hjartna okkar uppfylltar.
Megi dýrð Guðs hvíla yfir fylgjendum Bahá!
- `Abdu'l-Bahá