Return to BahaiPrayers.net
Facebook
Ó Guð minn. Ó Þú, sem fyrirgefur syndir okkar, gefur okkur gjafir, eyðir sorgum okkar. Sannlega bið ég Þig að fyrirgefa syndir þeirra, sem hafa yfirgefið jarðneska líkama sína og haldið til æðri heims.
Ó Drottinn minn, hreinsa þá af misgjörðum, dreif sorg þeirra og snú myrkri þeirra í ljós. Lát þá ganga í garð hamingjunnar, lauga þá með tærasta vatni og gef að þeir megi líta dýrð Þína á hinu hæsta fjalli.
- `Abdu'l-Bahá