Return to BahaiPrayers.net
Facebook
Ó Guð minn! Ó Guð minn! Vissulega hefur þjónn Þinn, auðmjúkur frammi fyrir tign Þíns himneska fullveldis og undirgefinn við dyr einleika Þíns, trúað á Þig og ritningar Þínar, borið orði Þínu vitni, upptendrast af eldi ástar Þinnar, sokkið í hafdjúp þekkingar Þinnar, laðast að andvara Þínum, treyst á Þig, beint til Þín augliti sínu, beðið til Þín og fengið fullvissu um fyrirgefningu Þína og aflausn. Hann hefur yfirgefið þetta dauðlega líf, flogið til ríkis ódauðleikans og þráð þá hylli að komast á fund Þinn.
Ó Drottinn! Ger stöðu hans dýrlega, skýl honum undir tjaldhimni æðstrar miskunnar Þinnar, lát hann ganga inn í dýrlega paradís Þína og gef honum eilíft líf í upphöfnum rósagarði Þínum, svo hann megi sökkvast í úthaf ljóssins í heimi leyndardóma.
Vissulega ert Þú hinn örláti og voldugi, fyrirgefandinn og veitandinn
- `Abdu'l-Bahá