Return to BahaiPrayers.net
Facebook
Ó Þú vorkunnláti Drottinn!
Þótt sumar sálir hafi eytt æfi sinni í fáfræði og orðið firringu og mótþróa að bráð, verða allir sem fallnir voru í synd frelsaðir með einni öldu á úthafi fyrirgefningar Þinnar. Hvern sem Þú vilt gerir Þú að trúnaðarvini og sá sem ekki verður fyrir vali Þínu telst misgerðarmaður. Ef Þú gerðir við okkur samkvæmt réttlæti Þínu værum við öll ekkert nema syndarar og verðskulduðum höfnun Þína. En ef Þú sýndir miskunn yrði sérhver syndari gerður flekklaus og sérhver framandi maður að vini. Veit því fyrirgefningu Þína og aflausn og sýn öllum miskunn Þína.
Þú ert fyrirgefandinn, ljósgjafinn, hinn alvaldi.
- `Abdu'l-Bahá