Return to BahaiPrayers.net
Facebook
Ó Þú miskunnsami Guð! Ó Þú sem ert máttugur og voldugur! Ó Þú gæskuríkasti faðir! Þessir þjónar Þínir hafa komið saman og leitað til Þín, biðja til fótskarar Þinnar, óska eftir takmarkalausri hylli Þinni frá Þinni voldugu fullvissu. Þeir hafa ekkert áform annað en velþóknun Þína, ætla sér ekkert nema að þjóna mannheimi.
Ó Guð! Ger þennan fund geislandi. Ger hjörtun miskunnsöm. Veit hylli heilags anda. Miðla þeim krafti frá himnum. Blessa þá með himnesku hugarfari. Auk einlægni þeirra svo þeir megi, fullir auðmýktar og iðrunar, leita til ríkis Þíns og festa hugann við þjónustu við mannheim. Megi hver og einn verða skínandi kerti. Megi hver og einn verða tindrandi stjarna. Megi hver og einn verða fagurleitur og veita ljúfum ilmi í ríki Guðs.
- `Abdu'l-Bahá