Return to BahaiPrayers.net
Facebook
Ó Guð minn! Ó Guð minn! Vissulega leita þessir þjónar Þínir til Þín og biðja til ríkis miskunnar Þinnar. Sannlega laðast þeir að heilagleika Þínum og eru upptendraðir af eldi ástar Þinnar. Þeir leita staðfestingar frá undursamlegu ríki Þínu og vonast eftir inngöngu í Þinn himneska heim. Vissulega þrá þeir gjafir Þínar og óska sér uppljómunar frá sól veruleikans. Ó Drottinn! Ger þá skínandi lampa, líknandi tákn, frjósöm tré og tindrandi stjörnur. Megi þeir ganga fram í þjónustu Þinni, tengjast Þér böndum kærleika Þíns og þrá birtu örlætis Þíns. Ó Drottinn! Ger þá að táknum handleiðslu Þinnar, gunnfána ódauðlegs ríkis Þíns, bylgjur á hafi miskunnar Þinnar og lát þá endurspegla birtu tignar Þinnar. Vissulega ert Þú hinn veglyndi. Vissulega ert Þú hinn miskunnsami. Vissulega ert Þú hinn hjartfólgni og elskaði.
- `Abdu'l-Bahá