Return to BahaiPrayers.net
Facebook
Dýrð sé Þér, ó Guð. Hvernig get ég nefnt Þig þegar Þú ert helgaður yfir lofgjörð alls mannkyns. Miklað sé nafn Þitt, ó Guð, Þú ert konungurinn, sannleikurinn eilífi. Þú veist hvað er á himnum og jörðu og til Þín verða allir að hverfa aftur. Þú hefur sent niður guðlega ákvarðaða opinberun Þína í samræmi við skýran mælikvarða. Lofaður sért Þú, ó Drottinn! Að boði Þínu gerir Þú hvern sem Þér þóknast sigursælan með herskörum himins og jarðar og alls sem þar er á milli. Þú ert yfirbjóðandinn, sannleikurinn eilífi, Drottinn ósigrandi valds. Dýrð sé Þér, ó Drottinn, Þú fyrirgefur ævinlega syndir þeirra sem biðja Þig um aflausn. Hreinsa mig af syndum mínum og þá sem leita fyrirgefningar Þinnar í dögun, sem biðja til Þín að degi til og að næturþeli, sem þrá ekkert nema Guð og fórna öllu sem Guð hefur náðarsamlega gefið þeim, sem færa Þér lof kvölds og morgna og vanrækja ekki skyldur sínar.
- The Báb