Return to BahaiPrayers.net
Facebook
Ó Þú vorkunnláti Drottinn! Þú ert athvarf öllum þessum þjónum Þínum. Þú þekkir leyndarmálin og ekkert fer framhjá Þér. Öll erum við hjálpar vana og Þú ert hinn máttugi og alvoldugi. Öll erum við syndug og Þú ert sá sem fyrirgefur syndir, hinn miskunnsami og samúðarríki. Ó Drottinn! Lít ekki á vankanta okkar. Ger við okkur samkvæmt náð Þinni og veglyndi. Vankantar okkar eru margir en úthaf fyrirgefningar Þinnar takmarkalaust. Veikleiki okkar er hörmulegur, en tákn hjálpar Þinnar og aðstoðar auðsæ. Veit okkur því styrk og staðfestu. Ger okkur kleift að inna það af höndum sem er verðugt heilagri fótskör Þinni. Uppljóma hjörtu okkar. Gef okkur skýra sjón og næma heyrn. Endurlífga dauða og lækna sjúka. Auðga snauða og veit óttaslegnum öryggi og frið. Veit okkur viðtöku í ríki Þínu og uppljóma okkur með ljósi leiðsagnar. Þú ert hinn voldugi og alvaldi. Þú ert hinn göfugi og mildi. Þú ert hinn gæskuríki.
- `Abdu'l-Bahá