Return to BahaiPrayers.net
Facebook
Dýrð sé Þér, ó Guð Drottinn minn! Vissulega hafa þessi þjónn Þinn og þjónustumær komið saman í skugga miskunnar Þinnar og sameinast í krafti hylli Þinnar og örlætis. Ó Drottinn, hjálpa þeim í þessari veröld og í ríki Þínu og ákvarða þeim allt sem gott er með fulltingi hylli Þinnar og miskunnar.
Ó Drottinn, staðfest þau í undirgefni við Þig og aðstoða þau í þjónustu við Þig. Lát þau verða tákn nafns Þíns í heimi Þínum og vernda þau með gjöfum Þínum, sem eru óþrotlegar í þessari veröld og þeirri sem kemur. Ó Drottinn, þau biðja til ríkis náðar Þinnar og ákalla ríki einstæðis Þíns. Vissulega eru þau gefin saman í hlýðni við boð Þín. Lát þau verða tákn samlyndis og einingar allt til loka.
Vissulega ert Þú hinn alvaldi, hinn allstaðarnálægi og almáttugi.
- `Abdu'l-Bahá