Return to BahaiPrayers.net
Facebook
Drottinn minn, ó Drottinn minn! Þessir tveir björtu hnettir eru gefnir saman í ást Þinni, samtengdir í þjónustu við heilaga fótskör Þína, sameinaðir í umhyggju fyrir málstað Þínum. Lát þetta hjónaband verða sem flæðandi ljós mikillar náðar Þinnar, ó Drottinn minn, hinn almiskunnsami, og skínandi geisla gjafa Þinna, ó Þú hinn góðviljaði og sígjöfuli, svo að á þessu mikla tré megi spretta greinar sem vaxa grænar og gróskumiklar vegna gjafanna sem rignir úr skýjum náðar Þinnar.
Vissulega er Þú hinn örláti. Vissulega ert Þú hinn almáttugi. Vissulega ert Þú hinn vorkunnláti og almiskunnsami.
- `Abdu'l-Bahá