Return to BahaiPrayers.net
Facebook
Dýrð sé Þér, ó Drottinn heimsins og þrá þjóðanna, ó Þú sem hefur birst í hinu mesta nafni, sem hefur látið perlur visku og tjáningar birtast í skeljunum í reginhafi þekkingar Þinnar og skrýtt himna guðlegrar opinberunar með ljósinu frá sól ásýndar Þinnar.
Ég bið Þig við orðið sem fullnaði sönnun Þína meðal skepna Þinna og uppfyllti lögmál Þitt meðal þjóna Þinna, að styrkja fylgjendur Þína svo að ásýnd málstaðarins ljómi í ríki Þínu, merki valds Þíns verði reist meðal þjóna Þinna og fánar leiðsagnar Þinnar dregnir að hún um gervöll ríki Þín.
Ó Drottinn minn. Þú sérð þá taka í líftaug náðar Þinnar og halda sér í kyrtilfald góðvildar Þinnar. Ákvarða þeim það sem færir þá nær Þér og lát þá ekki hneigjast að neinu öðru en Þér.
Ég bið Þig, ó Þú konungur tilverunnar og verndari hins séða og óséða, að gera hvern þann sem rís upp til að þjóna málstað Þínum að úthafi sem hreyfist að vild Þinni. Lát hann loga af eldi Þíns heilaga trés, sem lýsir frá sjónarhring himnaríkis vilja Þíns. Vissulega ert Þú hinn máttugi, sem hvorki öfl alls heimsins né styrkur þjóðanna fær veikt. Enginn er Guð nema Þú, hinn eini og óviðjafnanlegi, verndarinn, hinn sjálfumnógi.
- Bahá'u'lláh