Return to BahaiPrayers.net
Facebook
Í nafni Guðs, hins hæsta! Vegsamaður og dýrlegur sért Þú, Drottinn, Guð alvaldur. Andspænis visku Þinni fallast hinum vitru hendur, frammi fyrir þekkingu Þinni játa hinir lærðu fáfræði sína, gagnvart mætti Þínum verða hinir sterku vanmegna, gegnt auðlegð Þinni bera hinir ríku vitni fátækt sinni, frammi fyrir ljósi Þínu týnast hinir upplýstu í myrkri, í átt til helgireits þekkingar Þinnar snýr kjarni alls skilnings og um griðastað návistar Þinnar hringsóla sálir alls mannkyns.
Hvernig get ég þá sungið og sagt frá kjarna Þínum sem viska hinna vitru og lærdómur hinna lærðu geta eigi skilið, því að enginn maður getur vegsamað það sem hann eigi skilur né skýrt frá því sem hann eigi fær höndlað, en Þú hefur aftur á móti verið hinn ótilkvæmilegi, hinn órannsakanlegi. Þótt mig skorti mátt til að rísa til himins dýrðar Þinnar og svífa í ríkjum þekkingar Þinnar, get ég ekki annað en sagt frá táknum Þínum sem eru talandi vottur um dýrlegt handarverk Þitt.
Við dýrð Þína! Ó ástvinur allra hjartna, Þú sem einn getur linað sársauka þrárinnar eftir Þér! Þótt allir íbúar himins og jarðar sameinuðust til að gera dýrlegt hið minnsta af táknum Þínum, þar sem Þú opinberar sjálfan Þig, myndi þeim samt ekki takast það, hversu miklu síður lofa Þitt heilaga orð, skapara allra tákna Þinna.
Allt lof og dýrð sé Þér, ó Þú sem allt sem skapað er vitnar um að ert einn, að enginn er Guð nema Þú, upphafinn frá eilífu yfir allan samanburð eða líkingu og verður það áfram að eilífu. Allir konungar eru aðeins þjónar Þínar og allar verur, sýnilegar og ósýnilegur, eru sem hjóm frammi fyrir Þér. Enginn er Guð nema Þú, hinn náðugi og voldugi, hinn hæsti.
- Bahá'u'lláh