Return to BahaiPrayers.net
Facebook
Þér sé öll tign og dýrð, ó Guð minn, allt veldi og ljós, mikilleiki og dýrðarljómi. Þú veitir yfirráð hverjum sem Þú vilt og meinar þau hverjum sem Þér þóknast. Enginn er Guð nema Þú, eigandi alls, hinn upphafnasti. Þú ert sá sem skapaðir alheiminn og allt sem í honum er úr alls engu. Ekkert er Þér verðugt nema Þú sjálfur og allir nema Þú eru sem úrhrök í heilagri návist Þinni og sem alls ekkert í samanburði við dýrð Þinnar eigin verundar.
Fjarri sé það mér að vegsama dyggðir Þínar nema með því sem Þú vegsamaðir sjálfan Þig í þungvægri bók Þinni „Engin sýn skynjar Hann, en Hann sér alla sýn. Hann er hinn fíngjörvi, sá sem allt skynjar.“¹ Dýrð sé Þér, ó Guð minn. Að sönnu getur enginn hugur eða auga, hversu skarpt og glöggskyggnt sem það er, nokkru sinni skilið eðli hins minnsta af táknum Þínum. Sannlega ert Þú Guð, enginn er Guð nema Þú. Ég ber því vitni að Þú ert sjálfur eina tjáning eiginda Þinna, að engin vegsömun getur nokkru sinni náð til Þíns heilaga forgarðs nema Þín eigin vegsömun og enginn nema Þú sjálfur getur nokkru sinni skilið eigindir Þínar.
Dýrð sé Þér, Þú ert upphafinn yfir lýsingu allra nema sjálfs Þín því það er ofar huga mannsins að mikla með viðeigandi hætti dyggðir Þínar eða skilja innsta veruleika kjarna Þíns. Fjarri sé það dýrð Þinni, að skepnur Þínar geti lýst Þér eða nokkur annar en Þú sjálfur geti nokkru sinni þekkt Þig. Ég hef þekkt Þig, ó Guð minn, vegna þess að Þú veittir mér þekkingu á Þér og hefðir Þú ekki opinberast mér, hefði ég ekki þekkt Þig. Ég tilbið Þig vegna þess að Þú kallaðir mig til Þín og hefðir Þú ekki kallað mig hefði ég ekki tilbeðið Þig.
¹ Kóraninn 6:103
- The Báb