Return to BahaiPrayers.net
Facebook
Ó Þú Drottinn hins sýnilega og ósýnilega og sá, sem uppfræðir alla sköpunina. Ég sárbæni Þig við yfirráð Þín, sem hulin eru sjónum manna, að opinbera á alla vegu tákn Þinna margföldu blessana og ummerki ástúðar Þinnar, svo að ég megi rísa upp fagnandi og frá mér numinn og lofa undursamlegar dyggðir Þínar, ó Þú hinn miskunnsamasti, og hreyfa með nafni Þínu við öllu sem skapað er og glæða svo eld lofgjörðar Þinnar meðal skepna Þinna, að gjörvallur alheimurinn megi fyllast birtunni frá ljósi dýrðar Þinnar og öll veröldin upptendrist af eldi málstaðar Þíns.
Vef því eigi saman, ó Drottinn minn, sem breitt hefur verið út í Þínu nafni og slökk eigi lampann, sem Þinn eigin eldur hefur tendrað. Meina ekki vatninu, sem er lífið sjálft, ó Drottinn minn, að streyma niður, en í klið þess má heyra hljómana undursamlegu, sem lofa Þig og vegsama. Neita eigi heldur þjónum Þínum um sætan ilminn af andblænum, sem bærst hefur vegna ástar Þinnar. Þú sérð, ó Þú sem ert aldýrlegur ástvinur minn, eirðarlausar öldurnar sem rísa á hafi hjarta míns í ást minni og þrá eftir Þér. Ég bið Þig við tákn hátignar Þinnar og vitnisburð yfirráða Þinna, að yfirbuga þjóna Þína með þessu nafni, sem Þú hefur gert að konungi allra nafna í ríki sköpunar Þinnar. Þú ert þess megnugur að ríkja að vild Þinni. Enginn er Guð nema Þú, hinn aldýrlegi, hinn gjafmildasti. Fyrirhuga Þú ennfremur hverjum þeim, sem hefur leitað til Þín, það sem gera mun hann svo staðfastan í málstað Þínum, að hvorki fánýtir hugarórar hinna trúlausu meðal skepna Þinna né ónytjumælgi hinna vegvilltu meðal þjóna Þinna megni að útiloka hann frá Þér. Þú ert í sannleika hjálpin í nauðum, hinn almáttugi og voldugasti.
- Bahá'u'lláh