Return to BahaiPrayers.net
Facebook
Ó vorkunnláti Drottinn! Þú sem ert örlátur og alls megnugur. Við erum þjónar Þínir í skjóli forsjár Þinnar. Lít til okkar náðaraugum Þínum. Gef augum okkar ljós, eyrum okkar heyrn og skilning og kærleika hjörtum okkar. Fyll sálir okkar fögnuði og hamingju með gleðiboðskap Þínum. Ó Drottinn, vísa okkur leið konungsríkis Þíns og lát okkur endurfæðast fyrir tilhlutan heilags anda. Gef okkur eilíft líf og ævarandi heiður. Sameina mannkynið og lýs veröld þess. Mættum við öll fylgja Þínum vegi, þrá velþóknun Þína og leita leyndardóma konungsríkis Þíns. Ó Guð! Sameina okkur og teng Þú hjörtu okkar með Þínu órjúfanlega bandi.
Sannarlega ert Þú gjafarinn, hinn mildi og almáttugi.
- `Abdu'l-Bahá