Return to BahaiPrayers.net
Facebook
Í nafni Drottins Þíns, skaparans, yfirbjóðandans, þess sem öllum nægir, hins upphafnasta, þess sem allir leita hjálpar hjá. Seg: Ó Guð minn! Ó Þú, sem ert smiður himnanna og jarðarinnar, ó Drottinn konungsríkisins! Þú þekkir gjörla leyndarmál hjarta míns, en verund Þín er órannsakanleg öllum nema sjálfum Þér. Þú sérð hvaðeina, sem er af mér, og engum er það megnugt nema Þér. Veit mér sakir náðar Þinnar það sem gerir óháðan öllu nema Þér. Gef að ég megi uppskera ábata lífs míns í þessum heimi og hinum næsta. Opna fyrir ásjónu minni hlið náðar Þinnar og veit mér af mildi Þinni blíða miskunn Þína og gjafir.
Ó Þú, sem ert Drottinn nógsamlegrar náðar! Lát himneska hjálp Þína umlykja alla þá, sem elska Þig, og gef okkur þær gjafir og hylli, sem eru í eigu Þinni. Ver okkur nægur umfram allt annað, fyrirgef syndir okkar og auðsýn okkur miskunn. Þú ert Drottinn okkar og Drottinn alls, sem skapað er. Engan áköllum við nema Þig og einskis förum við á leit nema hylli Þinnar. Þú ert Drottinn örlætis og náðar, ósigrandi í krafti Þínum og fremstur allra í áformum Þínum. Enginn er Guð nema Þú, eigandi alls, hinn upphafnasti.
Veit blessanir Þínar, ó Drottinn minn, boðberunum, hinum heilögu og réttlátu. Vissulega ert Þú Guð, hinn óviðjafnanlegi, hinn al-knýjandi.
- The Báb