Return to BahaiPrayers.net
Facebook
Dýrð sé Þér, ó konungur eilífðar, skapari þjóðanna og sá sem mótar hvert fúnandi bein! Ég bið Þig við nafn Þitt, sem Þú lést kalla allt mannkyn til sjónarhrings tignar Þinnar og hylli og leiðbeina þjónum Þínum að telja mig með þeim sem hafa varpað frá sér öllu nema Þér og haldið til Þín, og ekki látið þær þrengingar sem Þú hefur ákvarðað aftra sér frá að leita til Þín.
Ég hef, ó Drottinn minn, tekið í handfestu hylli Þinnar og haldið staðfastlega í kyrtilfald veglyndis Þíns. Send því niður yfir mig úr skýjum örlætis Þíns það sem hreinsar mig af minningu um allt nema Þig og ger mér kleift að leita til Hans sem allt mannkynið tilbiður og sem undirróðursmennirnir hafa fylkt sér gegn, þeir sem rufu sáttmála Þinn og höfnuðu trú á Þig og tákn Þín.
Neita mér ekki, ó Drottinn minn, um ilminn af klæðum Þínum á Þínum eigin dögum og svipt mig ekki andblæ opinberunar Þinnar þegar ljóminn af ljósi ásýndar Þinnar birtist. Þú ert þess megnugur að gera það sem Þér líst. Enginn getur staðið í gegn vilja Þínum né komið í veg fyrir það sem Þú hefur ákvarðað með valdi Þínu.
Enginn er Guð nema Þú, hinn almáttugi og alvísi.
- Bahá'u'lláh