Return to BahaiPrayers.net
Facebook
Ó Guð, Guð minn! Lof sé Þér fyrir að glæða eld himneskrar ástar í hinum helga meið á tindi hins hæsta fjalls, sem „hvorki er af austri eða vestri¹“, eldinn sem funar uns logar hans ná til herskaranna á hæðum, og frá Honum fengu þessir veruleikar ljós leiðsagnar og hrópuðu: „Sannlega höfum við séð eldinn í hlíðum Sinaí!²“
Ó Guð, Guð minn! Glæð þennan eld með hverjum degi sem líður uns bál hans hreyfir við öllu á jörðu. Ó Þú Drottinn minn! Glæð ljós ástar Þinnar í hverju hjarta, blás í sálir mannanna anda þekkingar Þinnar, gleð brjóst þeirra með ritningarversum einleika Þíns. Vek þá til lífsins sem liggja í gröfum sínum, aðvara hina drambsömu, lát hamingju fylla jörðina, send niður kristaltært vatn Þitt og lát ganga bikar ástarinnar sem er „tempraður við kamfórubrunninn³“ í söfnuði augljósrar dýrðar.
Sannlega ert Þú gjafarinn, fyrirgefandinn, sá sem allt gefur. Sannlega ert Þú hinn miskunnsami og vorkunnláti.
¹ Kóraninn 24:35
² Kóraninn 28:29
³ Kóraninn 76:5
- `Abdu'l-Bahá