Return to BahaiPrayers.net
Facebook
Ó Guð, nálægð Þín er ósk mín, návist Þín er von mín, minning Þín er þrá mín, forgarður dýrðar Þinnar er takmark mitt, aðsetur Þitt er áfangastaður minn, nafn Þitt lækning mín, ást Þín geislan hjarta míns, þjónusta við Þig mín æðsta eftirlangan! Ég grátbið Þig við nafn Þitt sem gerði þeim sem borið hafa kennsl á Þig fært að svífa til hæstu hæða þekkingar á Þér og veitti þeim sem tilbiðja Þig af einlægni styrk til að komast í forgarð heilagrar hylli Þinnar, – hjálpa mér að beina sjónum að ásýnd Þinni, að festa augu mín á Þér og tala um dýrð Þína.
Ég er sá, ó Guð minn sem hefur gleymt öllu öðru en Þér og leitað til dagsbrúnar náðar Þinnar og yfirgefið allt nema Þig sjálfan í von um að nálgast forgarð Þinn. Lít því til mín þegar ég beini augum mín að aðsetrinu sem ljómar af birtu ásjónu Þinnar. Send niður yfir mig, ó minn elskaði, það sem gerir mig staðfastan í málstað Þínum, svo að efasemdir hinna trúlausu geti ekki hindrað mig í að leita til Þín.
Þú ert sannlega Guð valdsins, hjálpin í nauðum, hinn aldýrlegi og almáttugi.
- Bahá'u'lláh