Return to BahaiPrayers.net
Facebook
Ó Drottinn minn! Þú veist að fólkið er umkringt þjáningum og ógæfu, býr við þrengingar og mæðu. Sérhver raun herjar á manninn og hvers kyns ógn ræðst að honum eins og naðra. Hvergi á hann sér skjól né hæli, nema undir væng verndar Þinnar og varðveislu, gæslu og forsjár.
Ó Þú miskunnsami! Ó Drottinn minn! Ger Þú vernd Þína að hertygjum mínum, varðveislu Þína að skildi mínum, auðmýkt frammi fyrir dyrum eindar Þinnar gæslu mína, og forsjá Þína og vörn að aðsetri mínu og virki. Varðveit mig gegn atlögum sjálfs og ástríðna, og vernda mig gegn hverskyns sjúkleika, raunum, erfiðleikum og eldskírn.
Vissulega ert Þú vörðurinn, sá er verndar og varðveitir, nægjandinn, og vissulega ert Þú miskunnsamastur þeirra sem sýna miskunn.
- `Abdu'l-Bahá