Return to BahaiPrayers.net
Facebook
(Þessi tafla er lesin við heilög grafhýsi Bahá’u’lláh og Bábsins. Hún er einnig iðulega notuð við minningarhátíðir þeirra.)
Lofgjörðin, sem hefur stigið upp frá Þínu göfugasta sjálfi og dýrðin, sem hefur skinið frá björtustu fegurð Þinni, hvíli yfir Þér, ó Þú sem ert birting tignar, konungur eilífðar og Drottinn allra á himnum og á jörðu!
Ég ber því vitni, að fyrir Þig hafa veldi Guðs og ríki Hans, mikilleiki Guðs og tign Hans verið opinberuð, sólir aldinnar geisladýrðar úthellt ljóma sínum á himni óafturkallanlegrar ákvörðunar Þinnar og fegurð hins óséða hefur skinið yfir sjónarhring sköpunar.
Ég ber því ennfremur vitni, að einungis með hreyfingu penna Þíns hefur skipun Þinni „Ver“ verið fullnægt og hulinn leyndardómur Guðs afhjúpaður og öllu sem skapað er gefin tilvist og allar opinberanir sendar niður.
Ég ber því einnig vitni, að með fegurð Þinni hefur fegurð hins tilbeðna verið afhjúpuð og með ásýnd Þinni hefur ásýnd hins þráða varpað ljóma og með orði Þínu hefur Þú greint á milli alls sem skapað er og af þeim völdum hafa þeir, sem eru Þér trúir, risið upp til hæstu dýrðar og trúleysingjarnir fallið í dýpsta afgrunn.
Ég ber því vitni, að sá sem hefur þekkt Þig hefur þekkt Guð og sá sem hefur komist í návist Þína hefur komist í návist Guðs. Mikil er því blessun hans sem hefur trúað á Þig og á tákn Þín og hefur auðmýkt sig frammi fyrir yfirráðum Þínum, verið heiðraður með að mæta Þér, öðlast velþóknun vilja Þíns, snúist um Þig og staðið frammi fyrir hásæti Þínu. Vei þeim, sem hefur brotið gegn Þér og afneitað Þér, vísað á bug táknum Þínum, mælt gegn yfirráðum Þínum, risið upp gegn Þér, hreykt sér frammi fyrir ásýnd Þinni, véfengt vitnisburði Þína, flúið vald Þitt og yfirráð og talist til trúvillinganna sem fingur skipunar Þinnar hafa skráð með nafni á Þínar helgu töflur.
Bein því til mín, ó Guð minn og minn ástfólgni, frá hægri hendi miskunnar Þinnar og ástríkis, helgum andblæ velþóknunar Þinnar, svo ég megi leysast frá sjálfum mér og umheiminum og laðast að forgarði nálægðar Þinnar og nærveru.
Þú ert þess megnugur að gera það sem þóknast Þér. Þú hefur í sannleika verið æðstur yfir öllu sem er.
Minningin um Guð og lofgjörð Hans, dýrð Guðs og ljómi, hvíli yfir Þér, ó Þú sem ert fegurð Hans! Ég ber því vitni, að auga sköpunarinnar hefur aldrei litið neinn jafn rangtleikinn og Þig.
Þú varst umlukinn úthafi mótlætis alla daga lífs Þíns. Eitt sinn varst Þú í hlekkjum og fjötrum; annað sinn vofði sverð óvina Þinna yfir Þér. Samt sem áður bauðst Þú öllum mönnum að halda það, sem Þér var falið af Honum sem er hinn alvísi og alvitri.
Megi anda mínum verða fórnað sakir rangindanna sem Þú máttir þola og sál mín verða lausnargjald fyrir raunirnar sem féllu Þér í hlut. Ég sárbæni Guð við Þig og þá, sem hafa uppljómast af geisladýrð ásýndar Þinnar, og þá sem vegna ástar á Þér hafa haldið hvaðeina sem þeim var boðið, að fjarlægja blæjurnar sem hafa komið á milli Þín og skepna Þinna og veita mér af gæðum þessa heims og þess sem kemur.
Þú ert í sannleika hinn almáttugi, hinn upphafnasti, hinn aldýrðlegi, sá sem ætíð fyrirgefur, hinn samúðarfyllsti.
Blessa Þú, ó Drottinn Guð minn, hið guðdómlega Lótustré, lauf þess og greinar, kvisti þess, stilka og nýgræðinga, svo lengi sem ágætustu nafnbætur Þínar vara og tignustu eigindir endast. Vernda það einnig gegn misgjörðum árásarmanna og herskörum kúgunar. Þú ert í sannleika hinn almáttugi og voldugasti. Blessa Þú einnig, ó Drottinn Guð minn, þjóna Þína og þjónustumeyjar sem hafa komist til Þín. Þú ert vissulega sá sem allt gefur og náð Þín er takmarkalaus.
Enginn er Guð nema Þú, sá sem ætíð fyrirgefur, hinn örlátasti.
- Bahá'u'lláh