Return to BahaiPrayers.net
Facebook
Ó Guð! Ó Guð! Gef mér að drekka af bikar gjafa Þinna. Upplýs andlit mitt ljósi leiðsagnar. Ger mig tryggan, stöðugan og staðfastan í Þínum forna sáttmála. Leyf mér að verða einn Þinna einlægu þjóna. Opna fyrir mér dyr velmegunar. Veit mér tækifæri til að afla lífsviðurværis. Gef mér mitt daglega brauð með ráðum sem ekki eru á mínu valdi, úr Þínum himnesku fjárhirslum. Styrk mig til að beina augliti mínu að miskunnsamri ásýnd þinni og vera trúr málstað Þínum, ó Þú mildi og vorkunnláti! Vissulega ert Þú náðugur þeim sem eru stöðugir og staðfastir í Þínum sterka og ósigrandi sáttmála. Lof sé Guði, Drottni veraldanna!
- `Abdu'l-Bahá