Return to BahaiPrayers.net
Facebook
Ó góði Guð. Þú ert mér betri en ég sjálfur og kærleikur Þinn meiri og eldri. Hvenær sem ég er minntur á gjafir Þínar fyllist ég gleði og von. Hafi sál mín verið í uppnámi hlýt ég frið í sálu og hjarta. Hafi veikindi þjáð mig fæ ég eilíft heilbrigði. Hafi ég verið ótrúr verð ég trúr. Hafi ég verið vonlaus fyllist ég von.
Ó Þú Drottinn konungsríkisins. Gleð Þú hjarta mitt, efl Þú veiklyndan huga minn og styrk Þú örþreyttar taugar. Lát birta fyrir augum, leyf eyrum mínum að heyra svo ég megi hlýða tónlist konungsríkis Þíns og öðlast ævarandi fögnuð og hamingju. Sannarlega ert Þú hinn örláti, sá sem gefur, hinn mildi.
- `Abdu'l-Bahá